Nökkvi Þeyr Þórisson er að eiga draumasumar með KA og hefur verið funheitur í síðustu níu leikjum liðsins þar sem hann hefur komið að nítján mörkum á beinan hátt.
Í dag skoraði hann tvö og gaf eina stoðsendingu í 3-0 sigri gegn ÍA en hann gerði það líka í síðasta leik sem var 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins gegn Ægi.
Leikinn þar á undan gaf hann tvær stoðsendingar og skoraði eitt mark gegn FH og ef farið er aftur um einn leik er að finna eina leikinn sem Nökkvi skoraði ekki í - 0-1 tap gegn KR.
Fyrir það gaf Nökkvi tvær stoðsendingar og skoraði gegn Keflavík en þar á undan hafði hann gert sjö mörk í fjórum leikjum gegn Fram (3), Leikni R. (2), ÍBV og Val (1).
Nökkvi, sem er nýbúinn að eiga 23 ára afmæli, er líklegur til að vera fenginn í erlent félagslið eftir þetta magnaða tímabil.