Einar Guðna hissa eftir tap: „Ekki í boði að gefast upp"

Einar Guðnason, þjálfari Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Guðnason, þjálfari Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Botnlið Víkings í Bestu Deild kvenna fékk Þór/KA til sína á Víkingsvöllinn í eina leik dagsins. 3-0 tap var niðurstaðan og því er víst að liðið hefur alvöru fallbaráttu brekku framundan en aðeins þrír leikir eru eftir þangað til að deildinni verður skipt og fimm stig eru í öruggt sæti. Einar Guðnason þjálfari Víkings spjallaði við fótbolta.net eftir leikinn.
„Ég er bara svolítið hissa að þessi leikur hafi farið 3-0, því að það er ekkert sem segir að hann eigi að fara 3-0. Nema þær skoruðu þrjú og við ekki neitt."
„Þór/KA refsuðu okkur fyrir öll mistök sem að við gerðum, svo vörðust þær gríðarlega vel í seinni hálfleik. Við verðum bara að taka þessu."
Víkingsliðið byrjaði af miklum krafti og hefðu mögulega átt að fá vítaspyrnu snemma leiks en klúðruðu líka góðu færi eftir það. Síðan stuttu eftir þessi móment skoraði Þór/KA fyrsta mark leiksins.
„Já, þetta hefur verið svolítið sagan okkar í sumar, við vinnum boltann, ætlum að sækja hratt, léleg sending og þær skora. Sama gerist í marki tvö. Við áttum náttúrulega að fá víti í byrjunleiks og við fáum alveg færi til að skora. Verðum bara að horfa á okkur sjálf, skora mörk og passa betur uppá boltann."
„Það er annað hvort bara að gefast upp eða halda áfram og það er náttúrulega ekki í boði að gefast upp. Ég er ekki búinn að gefast upp og það er eins gott að liðið sé ekki búið að því."
„Við tökum bara einn leik í einu, gerum okkar til að vinna hann svo tökum við leikina þar á eftir."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
