Fotbolti.net
14.08.26 - 16:59
Kári Snorrason

Kitlar að fá fyrirsagnirnar - „Held að þetta hafi samt ekki verið rosalega mikill peningur“

Auglýsing
Kominn aftur heim í Breiðablik.

Kominn aftur heim í Breiðablik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorleifur Úlfarsson var um síðustu helgi tilkynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks. Hann gengur í raðir liðsins frá Loudoun United og skrifar undir þriggja ára samning við félagið.

Fótbolti.net ræddi við Þorleif fyrr í dag um skrefið heim, lífið í Bandaríkjunum og um þann vígalega skurð sem hann er með á enninu eftir samstuð á æfingu Breiðabliks fyrr í dag.
Þorleifur:  Rétti stökkpallurinn aftur í atvinnumennsku
TENGT EFNI

Þorleifur: Rétti stökkpallurinn aftur í atvinnumennsku

„Ég er mjög spenntur fyir restinni af tímabilinu. Við þurfum að klára þetta með stæl. Við megum ekki bara hugsa um bikarúrslitin heldur líka um deildina og að enda þetta vel.“

„Þetta tók einhverjar nokkrar vikur. Þetta kom svolítið upp úr þurru. Þeir höfðu samband og ég hafði strax áhuga að koma aftur í Breiðablik og að spila fyrir liðið mitt. Við vorum alltaf að róa í rétta átt og svo komumst við að samkomulagi. Þetta tók nokkrar vikur.“

Komnar aðrar aðstæður
Þorleifur lék með Breiðabliki seinni hluta síðasta tímabils en fór síðan út til Loudoun. Hann var spurður hvort að það hefði ekki verið möguleiki á að vera áfram í Kópavoginum.

„Það var möguleiki á því en ég taldi þetta vera besta kostinn á þeim tíma. Núna eru komnar upp aðrar aðstæður og Blikar voru handvissir og áræðnir í að fá mig til baka.

Þeir sýndu mikinn áhuga. Þegar maður finnur fyrir þannig ást, vilja og áræðni í að koma manni heim og þeir koma fram við mann eins og alvöru leikmann þá kitlar mun meira að vera heima. Að sjálfsögðu bara best að vera í Breiðabliki.“


Með vígalegan skurð
Í viðtalinu sést að Þorleifur er með ansi stóran skurð við vinstra augað. Hann og Jónatan Guðni skullu saman á æfingu með þeim afleiðingum að Jónatan braut báðar framtennur sínar og sauma þurfti nokkur spor á Þorleifi.

„Þetta kom upp á æfingu í dag. Við lentum saman ég og Jonni (Jónatan Guðni Arnarsson). Það voru saumuð nokkur spor en það er allt í lagi með mig.“

Breiðablik mætir KR á Meistaravöllum á sunnudag og segist Þorleifur vera klár í slaginn þrátt fyrir samstuðið í dag. „Já, ég held það. Hann lenti aðeins verr í þessu en ég held að hann verði góður,“ sagði Þorleifur léttur.

Keyptur fyrir metfé
Þegar Loudoun United tilkynnti að Þorleifur væri á förum frá félaginu tók liðið sérstaklega fram að um metfé væri að ræða - aldrei hefur leikmaður frá liðinu verið keyptur á jafn mikla upphæð.

Kitlaði að sjá það?
„Já, það er alltaf gaman að fá einhverjar fyrirsagnir. Þetta var ekkert rosalega mikill peningur held ég. En þeir eru að reyna nota þetta til að koma sér áfram sem félag sem nær að reyna selja leikmenn. Þeir gera eins mikið úr þessu og þeir geta.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum í heild sinni hér að ofan.

Kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks um síðustu helgi.

Kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks um síðustu helgi.

Canon

Mynd: Breiðablik

Í leik með Breiðabliki í fyrra.

Í leik með Breiðabliki í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Núna eru komnar upp aðrar aðstæður og Blikar voru handvissir og áræðnir í að fá mig til baka.“

„Núna eru komnar upp aðrar aðstæður og Blikar voru handvissir og áræðnir í að fá mig til baka.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.