14.08.26 - 08:35
Elvar Geir Magnússon
Arsenal ræddi um Osimhen - Man Utd enn að reyna við Wharton

Victor Osimhen.

Mynd: EPA

Man Utd vill fá Wharton.

Mynd: EPA

Djed Spence fer í læknisskoðun.

Mynd: EPA

Victor Osimhen.

Mynd: EPA

Osimhen orðaður við Arsenal, tilboði Arsenal í varnarmann hafnað, Manchester United orðað við miðjumenn, tilboði Barcelona hafnað og Djed Spence að fara til Inter. Þetta og fleira í sjóðheitum slúðurpakka.
Arsenal hefur rætt við Galatasaray um að fá sóknarmanninn Victor Osimhen (27). Tyrkneska félagið er að reyna að kaupa Gabriel Martinelli og í viðræðum við Arsenal kom nafn Osimhen upp. (The Telegraph)
Arsenal reyndi að fá spænska varnarmanninn Marc Pubill (23) en fékk það svar frá Atletico Madrid að hann væri ekki til sölu. (AS)
Manchester United er enn að vonast eftir því að geta fengið miðjumanninn Adam Wharton (22) frá Crystal Palace. Chelsea hefur einnig áhuga. (The Sun)
Manchester United er nálægt samkomulagi við Leicester um miðjumanninn Louis Page (18). Arsenal hefur einnig sýnt honum áhuga. (Mirror)
Manchester City hefur hafnað 55 milljóna punda tilboði Barcelona í Rodri (30). Enska félagið vill yfir 60 milljónir fyrir spænska heimsmeistarann. (Sky Sports)
Djed Spence (26), varnarmaður Tottenham, fer í læknisskoðun hjá Inter í dag. (Gazzetta dello Sport)
Hull City er að tryggja sér franska miðjumanninn Lucas Gourna-Douath (23) frá Red Bull Salzburg fyrir 3,4 milljónir punda. (L'Equipe)
Hull hefur lagt fram tilboð yfir 15 milljónir punda í enska miðjumanninn Tim Iroegbunam (23) hjá Everton. (Teamtalk)
Ipswich Town er ákveðið í að fá þýska sóknarmanninn Derry Scherhant (23) frá Freiburg. (Teamtalk)
Bayer Leverkusen hefur hafnað 17 milljóna punda tilboði Ipswich í argentínska miðjumanninn Exequiel Palacios (27). (Sky Sports Þýskalandi)
Napoli verður að taka ákvörðun um framtíð ítalska sóknarmannsins Lorenzo Lucca (25) áður en félagið fer í viðræður við Arsenal um kaup á brasilíska sóknarmanninum Gabriel Jesus (29). (Corriere dello Sport)
Rúben Amorim stjóri AC Milan hefur tjáð átta leikmönnum að þeir séu hluti af niðurskurðaráætlunum félagsins. Þar á meðal eru enski varnarmaðurinn Fikayo Tomori (28) og franski framherjinn Christopher Nkunku (28). (Mail)
Ítalska félagið Genoa hefur áhuga á að fá írska sóknarmanninn Evan Ferguson (21) lánaðan frá Brighton. (Talksport)
West Ham telur líklegt að félagið nái samkomulagi við Celtic um kaup á belgíska miðjumanninum Arne Engels (22). (Football Insider)