Fotbolti.net
14.08.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Vicario til Juventus?

Vicario til Juventus?
Canon

Mynd: EPA

Juventus ætlar að einbeita sér að Guglielmo Vicario, markverði Tottenham, í leit sinni að nýjum manni á milli stanganna. Þetta kemur fram hjá Sky á Ítalíu.
Juventus hefur skoðað nokkra markverði í sumar, þar á meðal Emiliano Martínez og Zion Suzuki.

Aston Villa hafnaði eina tilboði Juventus í Martínez og dró ítalska félagið sig í kjölfarið úr viðræðunum.

Suzuki, markvörður Parma og japanska landsliðsins, var einnig ofarlega á óskalistanum. Hann færist hins vegar nær Paris Saint-Germain.

Juventus hafði íhugað að bíða eftir að PSG gengi frá kaupunum og reyna síðan að fá Suzuki að láni. Litlar líkur eru taldar á að það gangi eftir og hefur félagið því beint sjónum sínum að Vicario.

Juventus ætlar að ræða við Tottenham og kanna hvort hægt sé að fá Ítalann að láni.

Vicario hefur færst aftar í goggunarröðinni hjá Tottenham. Antonin Kinsky hefur verið gerður að aðalmarkverði liðsins og Martin Dubravka, sem kom til félagsins í sumar, verður honum til halds og trausts.

Vicario er 29 ára gamall og kom til Tottenham frá Empoli árið 2023. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.