14.08.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Carrick um Rashford: Er leikmaður okkar

Mynd: EPA

Mynd: EPA
„Við viljum meira, við þurfum meira, við munum halda áfram að skoða hvernig við getum gert það," segir Michael Carrick, stjóri Manchester United, um leikmannamarkaðinn.
Hann vill fá frekari styrkingu í sinn hóp og talað um að United sé í leit að vinstri bakverði og vilji bæta á miðsvæði sitt.
Hann vill fá frekari styrkingu í sinn hóp og talað um að United sé í leit að vinstri bakverði og vilji bæta á miðsvæði sitt.
Carrick gaf loðin svör þegar hann var spurður út í framtíð Marcus Rashford og vildi ekki staðfesta að hann yrði áfram hjá United þegar glugganum yrði lokað. Rashford lék á lánssamningi með Barcelona á síðasta tímabili en er kominn aftur á Old Trafford.
„Hann er okkar leikmaður," endurtók Carrick sífellt við fjölmiðla en efasemdir eru um að Rashford hafi raunverulegan áhuga á að vera áfram hjá United.
„Það hefur verið gott að hafa Marcus með okkur í þessari viku. Hann er okkar leikmaður og gefur okkur eitthvað aukalega."