13.08.26 - 22:49
Brynjar Ingi Erluson
Rakst á Rodri í Ryanair-flugi - „Af hverju er hann að fara um borð með okkur?“

Rodri

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Rodri

Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn er á leið aftur til Manchester-borgar frá Madríd þar sem hann mun halda endurhæfingu sinni áfram vegna bakmeiðsla sinna.
Rodri var valinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins þegar Spánn varð heimsmeistari í síðasta mánuði.
Real Madrid og Barcelona hafa bæði reynt að fá hann undanfarnar vikur. Madrídingar drógu sig þó úr baráttunni eftir að Rodri gerði þeim ljóst að hann vildi frekar fara til Barcelona.
Manchester City hafnaði öðru tilboði Börsunga í gær en það er talið hafa verið upp á um 52 milljónir punda.
Spænskir fjölmiðlar segja Barcelona ætla að leggja fram þriðja og síðasta tilboðið á næstu dögum. Um 8,5 milljónir punda í árangurstengdum greiðslum bætast þá við og gæti heildarverðið farið yfir 60 milljónir.
Ekkert samkomulag er hins vegar í höfn og er Rodri því á leið aftur til Manchester. Myndir af honum á flugvellinum í Madríd á leið til Englands hafa vakið mikla athygli.
Ástæðan er sú að Rodri, sem hefur unnið Ballon d'Or og er einn besti leikmaður heims, valdi að fljúga með írska lággjaldaflugfélaginu Ryanair.
Flestir leikmenn í hans stöðu hefðu líklega valið einkaþotu en Rodri er greinilega lítið fyrir slíkan munað.
Emily Brobyn, starfsmaður BBC og Sky, var fyrir tilviljun í sama flugi og birti myndir og myndskeið af honum á X. Hún segist hafa beðið Rodri um sjálfsmynd en hann hafi afþakkað til að vekja ekki óþarfa athygli.

Guys... why is Rodri getting on our Ryanair flight?? pic.twitter.com/QKC3W9xnQU
— Emily Brobyn (@kippaxgirlemily) August 13, 2026

Mynd: EPA