Fotbolti.net
14.08.26 - 09:15
Elvar Geir Magnússon

Lið og leikmaður 18. umferðar - Njarðvíkingar á sigurbraut

Valdimar Jóhannsson er leikmaður umferðarinnar.

Valdimar Jóhannsson er leikmaður umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin
18. umferð Lengjudeildarinnar var öll spiluð á einu bretti í gær. Njarðvík er heitasta lið deildarinnar um þessar mundir, eftir brösótta byrjun á tímabilinu er liðið búið að vinna fjóra leiki í röð og farið að anda ofan í hálsmálið á efstu liðum.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Valdimar Jóhannsson - Njarðvík
Var hrikalega öflugur í 4-1 útisigri gegn Gróttu. Skoraði gott mark og stýrði spili Njarðvíkur afar vel. Njarðvíkingar mættu tilbúnir til leiks frá fyrstu mínútu og var Gróttuliðið að elta allan leikinn.

Arnar Helgi Magnússon skoraði fyrsta mark Njarðvíkinga í leiknum og Davíð Smári Lamude er þjálfari umferðarinnar.


Afturelding heldur toppsæti deildarinnar eftir 3-3 jafntefli í stórleiknum gegn Fylki. Haukur Örn Brink, lánsmaðurinn frá Stjörnunni, skoraði sturlað mark fyrir Aftureldingu, lagði upp og skapaði mikla hættu fyrir vörn Fylkis.

Þróttur hefur verið að misstíga sig og tapaði óvænt 2-1 fyrir Grindavík. Damir Muminovic lék sem kóngur í vörn Grindvíkinga og þá var Ibra Camara, sem kom í glugganum, hrikalega öflugur.

Ólafur Íshólm Ólafsson var frábær í mark Leiknis en það dugði ekki til í Kórnum. HK vann gríðarlega mikilvægan sigur. Karl Ágúst Karlsson skoraði glæsilegt mark fyrir Kópavogsliðið.

Ibrahima Balde skoraði eina markið þegar Vestri vann ÍR 1-0. Guðmundur Arnar Svavarsson átti stoðsendinguna.

Völsungur heldur áfram að berjast af krafti við falldrauginn og vann Ægi 2-0 á útivell í botnslagnum. Þriðji sigur Húsvíkinga í síðustu fjórum leikjum. Dagbjartur Búi Davíðsson skoraði bæði mörk Völsungs og Xabi Cardenas var frábær á miðsvæðinu.

Fyrri úrvalslið:
17. umferð - Birnir Breki Burknason - Leiknir
16. umferð - Aron Snær Ingason - Þróttur
15. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
14. umferð - Birkir Eyþórsson - Fylkir
13. umferð - Óðinn Bjarkason - Afturelding
12. umferð - Andri Freyr Jónasson - Grótta
11. umferð - Birkir Már Sævarsson - Afturelding
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR
Davíð Smári Lamude er þjálfari umferðarinnar.

Davíð Smári Lamude er þjálfari umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding17+2235
2Þróttur R.18+1934
3Fylkir18+934
4Njarðvík18+832
5HK18+931
6Grótta17+126
7Vestri18-924
8Leiknir R.18-322
9Grindavík18-620
10ÍR18-919
11Völsungur18-1417
12Ægir18-278
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.