Fotbolti.net
14.08.26 - 15:14
Kári Snorrason

Álitsgjafar spá í stórleikinn í Kaplakrika

FH vann fyrri leikinn á Kópavogsvelli 3-2.

FH vann fyrri leikinn á Kópavogsvelli 3-2.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
FH tekur á móti Breiðabliki á morgun í sankölluðum stórleik í Bestu deild kvenna. Um er að ræða efstu tvö lið deildarinnar og eru bæði lið jöfn að stigum með 33 stig.

FH fór með 3-2 sigur af hólmi í fyrri viðureign liðanna á Kópavogsvelli. Flautað verður til leiks klukkan 17:00 síðdegis á morgun.

Fótbolti.net tók stöðuna á fjórum álitsgjöfum og fékk þá til að spá fyrir um úrslit leiksins.
Lestu um leikinn: FH 0 - 0 Breiðablik
Magnús Haukur Harðarson
FH 3-2 Breiðablik

Fyrri leikur liðanna á tímabilinu var sá besti á þessu tímabili og á morgun fáum framlengingu á því.Fram og tilbaka, aftur á bak og áfram veisla sem þetta verður.

Guðni sagði það skýrt eftir síðasta leik hvernig FH liðið mun mæta til leiks og Breiðablik þarf að jafna það og hækka um fjóra til að eiga séns á grasinu í Kaplakrika.

Ída og Ása skora meira veit ég ekki. Fjölmennum á völlinn og njótum.

Snæbjört Pálsdóttir
FH 4-2 Breiðablik

Ég býst við opnum leik og alvöru toppslag í Kaplakrika. FH mun reyna að keyra tempóið upp strax og spila sinn hraða, opna og sókndjarfa fótbolta þar sem breiddin og gæðin fram á við fá að ráða ferðinni.

Blikar eru með gæði til að refsa ef FH opnar sig of mikið og munu alveg fá sín færi, en sóknarafl FH á heimavelli verður of mikið að mínu mati.

Nýir leikmenn fá séns, Hildur Katrín sem er komin aftur heim setur eitt og Úlfa Dís finnur sig loksins í nýju liði í sumar og neglir einu inn. FH-vélin heldur áfram að malla og ég spái 4-2 sigri FH.

Mist Rúnarsdóttir
FH 4-2 Breiðablik

Litli leikurinn sem við fáum á morgun!

Jöfn að stigum, mörkin flæða, einstaklingsgæði, liðsheildir og auðvitað líka veikleikar! Það er erfitt að spá í þessa viðureign en ég er búin að vera með þá tilfinningu í dágóðan tíma að FH taki þetta og taki þar með risaskref í áttina að fyrsta Íslandsmeistaratitli síðan ´76.

Spáin kemur því bara úr kviðnum í þetta skiptið. 4-2 fyrir FH. Ída Marín spilar og setur tvö. Thelma Lóa eitt og Ingibjörg Magg eitt. Blikar minnka muninn í tvígang og Líf og Agla María sjá um þau mörk.

Leikurinn verður frábær skemmtun eins og þessara liða er von og vísa. Þú vilt ekki missa af honum. Mættu í Krikann!

Arnar Páll Garðarsson
FH 2-3 Breiðablik

Ætla að kalla eftir opnum og skemmtilegum leik. Tvö ólík en gríðarlega góð sóknarlið. Stærsta próf FH í sumar og spurning hvort þær séu komnar á það stig að klára svona leiki. Leikstíll Blika hentar þessu FH liði illa og þessvegna hallast ég að 3-2 sigri Blika.
FH aðeins tapað einum leik í sumar.

FH aðeins tapað einum leik í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úlfa mætt í grænt.

Úlfa mætt í grænt.

Canon

Mynd: Breiðablik

„Stærsta próf FH í sumar.“

„Stærsta próf FH í sumar.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bæði lið eru með 33 stig.

Bæði lið eru með 33 stig.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thelma Lóa Hermannsdóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir.

Thelma Lóa Hermannsdóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH14+2733
2Breiðablik14+2533
3ÍBV15-224
4Stjarnan15+423
5Grindavík/Njarðvík15-619
6Þróttur R.15-418
7Fram15-1316
8Þór/KA14-515
9Valur15-1313
10Víkingur R.14-1311
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.