Fékk að mæta sem „einhver vinur Dags" og eitt leiddi af öðru

Vinstri löppin er vel nothæf þó að hægri sé vissulega betri

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilað oftar í vinstri bakverði en þeim hægri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagur Ingi og Ásgeir Páll léku saman með Leikni Fáskrúðsfirði. Dagur er árinu eldri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við höfum spilað vel í langflestum leikjum í sumar en oft hefur vantað herslumuninn á að fá öll þrjú stigin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í Leiknistreyjunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'If you can, you can. If you can‘t, left back'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vinstri löppin er vel nothæf þó að hægri sé vissulega betri

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur verið duglegra við stigasöfnunina á þessu tímabili, liðið er með 22 stig úr fyrstu átján leikjunum en Þór er með sjö stigum minna.
Fótbolti.net ræddi við Ásgeir Pál Magnússon um komandi leik og ýmislegt annað.
Alltaf stemning í Þorpinu
Hvernig minningar átt þú af leikjum gegn Þór?
„Það er alltaf stemning í Þorpinu og gaman að spila þar. Síðustu leikir hafa verið hörku leikir sem við höfum oftar en ekki endað ofan á í. Góð veðurspá á morgun, býst ekki við öðru en hörku mætingu á skemmtilegan leik."
Keflavík vann fyrri leikinn með einu marki en Þór fékk færi á að jafna undir lokin en gestirnir klikkuðu úr víti.
Oft vantað herslumuninn
Ásgeir Páll hefur byrjað alla leiki Keflavíkur á tímabilinu og hefur skorað eitt mark, það kom í sigurleik á Akranesi.
Hvernig líður þér með tímabilið til þessa?
„Tímabilið hefur gengið þokkalega vel til þessa, erum kannski óheppnir að vera ekki með fleiri stig miðað við spilamennskuna okkar. Við höfum spilað vel í langflestum leikjum í sumar en oft hefur vantað herslumuninn á að fá öll þrjú stigin."
Réttfættur vinstri bakvörður
Ásgeir er þekktur fyrir að vera réttfættur vinstri bakvörður. Hvernig kom það til?
„Það er engin sérstök ástæða, þetta byrjaði bara þannig að við Gummi (Guðmundur Arnar Hjálmarsson) vorum báðir réttfættir bakverði í Leikni og ég var settur vinstra megin og hef verið það meira og minna síðan."
„If you can, you can. If you can‘t, left back“ – Haraldur Guðmundsson.
Ertu betri vinstra megin?
„Mér finnst eiginlega bæði betra, báðar stöður hafa auðvitað sína kosti, ég á betri fyrirgjafir með hægri en ég er vanari því að vera vinstra megin. Vinstri löppin er vel nothæf þó að hægri sé vissulega betri."
Fjórir að austan í hópnum
Tengingin milli Austurlands og Suðurnesja, geturu eitthvað sagt mér um hana?
„Sú tenging hefur verið gjöful í gegnum tíðina, margir góðir Austfirðingar spilað hér. Núna erum við fjórir í hópnum uppaldir fyrir austan (og svo Frans suðaustan)."
Ásgeir Páll, Dagur Ingi Valsson, Eiður Orri Ragnarsson og Þorlákur Breki Baxter eru uppaldir fyrir austan og Frans Elvarsson er frá Höfn.
Eitt leiddi af öðru
Ásgeir Páll er fæddur árið 2000 og lék með Leikni Fáskrúðsfirði út tímabilið 2021. Síðan hefur hann verið í Keflavík. En af hverju endaðir þú í Keflavík?
„Ég flutti í bæinn til að fara í skóla og langaði að taka næsta skref eftir góð ár heima. Ég fékk svo bara að koma á æfingar sem „einhver vinur Dags“ og eitt leiddi af öðru," segir Ásgeir Páll að lokum.

Spilað oftar í vinstri bakverði en þeim hægri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagur Ingi og Ásgeir Páll léku saman með Leikni Fáskrúðsfirði. Dagur er árinu eldri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við höfum spilað vel í langflestum leikjum í sumar en oft hefur vantað herslumuninn á að fá öll þrjú stigin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í Leiknistreyjunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'If you can, you can. If you can‘t, left back'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
