Fotbolti.net
14.08.26 - 08:42
Elvar Geir Magnússon

Eyjaálfa styður Infantino en Nýja-Sjáland gerir það ekki

Gianni Infantino, forseti FIFA.

Gianni Infantino, forseti FIFA.

Canon

Mynd: EPA

Nýja-Sjáland er nýjasta þjóðin sem hefur dregið stuðning sinn við Gianni Infantino, forseta FIFA, til baka. Með þessu slítur hún samstöðu sinni með fótboltasambandi Eyjaálfu sem hefur formlega lýst yfir stuðningi við Infantino.

Infantino hefur misst stuðning evrópska sambandsins (UEFA), asíska sambandsins og Concacaf (Norður- og Mið-Ameríka ásamt Karíbahafinu).

Afríska fótboltasambandið og Suður-ameríska sambandið hafa hinsvegar lýst yfir áframhaldandi stuðningi við Infantino til endurkjörs á þingi FIFA í mars.
„Eftir vandlega íhugun hefur fótboltasamband Nýja-Sjálands komist að þeirri niðurstöðu að ákvarðanir og aðgerðir innan FIFA hafi stuðlað að því að sambandið hafi misst traust og aukið sundrung í alþjóðlegum fótbolta," segir í yfirlýsingu Nýja-Sjálands.

Infantino hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.