Fotbolti.net
14.08.26 - 10:57
Kári Snorrason

Frederik varði með derhúfunni - „Góð varsla en svo fór allt út um þúfur“

Danska kvöldsólin er lúmsk.

Danska kvöldsólin er lúmsk.

Canon

Mynd: EPA

Frederik Schram átti óhefðbundna vörslu í leik Vals og Nordsjælland í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar í gær.

Leiknum lauk með 5-0 tapi Vals, lokatölur í einvíginu 7-0, og er ljóst að Evrópuþátttöku Valsmanna er lokið þetta árið.

Á 24. mínútu, í stöðunni 1-0 fyrir Nordsjælland, varði Frederik Schram vel í marki Vals með hausnum. Blíðskapaveður var í Danmörku og var Frederik með derhúfu til að skýla sér fyrir dönsku kvöldsólinni.
Lestu um leikinn: Nordsjælland 5 - 0 Valur
„Algjör miskilningur í vörn Valsmanna. Røjkjær keyrir inn í teig og nær boltanum, skýtur í markið en boltinn fer beint í hausinn hans Schram og yfir markið. Derhúfan flýgur af Schram,“ skrifaði Arngrímur Alex Ísberg Birgisson sem textalýsti leiknum hér á Fótbolti.net.

„Ég fór út úr markinu og reyndi að gera mig stóran og svo lenti boltinn beint í hausnum á mér. Þetta var góð varsla, en svo fór allt út um þúfur,“ sagði Frederik léttur í samtali við danska miðilinn Bold eftir leik.

Þrátt fyrir að leikurinn hafi endað með 5-0 tapi Valsmanna fékk Frederik lof eftir leik og var hann valinn næst besti maður Valsmanna. „Án hans hefði leikurinn farið 20-0,“ ritaði Arngrímur í skýrslu sinni um leikinn.
„Þetta var góð varsla, en svo fór allt út um þúfur.“

„Þetta var góð varsla, en svo fór allt út um þúfur.“

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.