Fotbolti.net
14.08.26 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Enginn stjóri Rangers byrjað eins illa

Derek McInnes.

Derek McInnes.

Canon

Mynd: EPA

Derek McInnes fer hræðilega af stað sem stjóri Rangers en enginn stjóri hefur byrjað eins illa í sögu félagsins.

Rangers féll úr leik í forkeppni Evrópudeildarinnar í gær, gegn Jagiellonia Bialystok frá Póllandi. Einvígið endaði samtals 3-2 en liðin gerðu 1-1 jafntefli í Glasgow í gær.

Í skosku deildinni er Rangers með eitt stig að loknum tveimur umferðum.
„Félagið vill vera í Meistaradeildinni eða Evrópudeildinni en ég tel að það sé ekki tilbúið fyrir það, það er erfitt að segja það en er staðreynd," segir McInnes.

McInnes var stjóri Hearts á síðasta tímabili en liðið var í harðri baráttu um að vinna skoska meistaratitilinn. Hann var síðan ráðinn stjóri Rangers en byrjun liðsins hefur verið brösótt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.