Fotbolti.net
14.09.17 - 19:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Logi Ólafs: Þriggja mínútna óútskýranlegt hrun

Auglýsing
Logi Ólafs: Þriggja mínútna óútskýranlegt hrun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Þetta var góður leikur fyrir okkur í upphafi. Við sköpum okkur færi og erum í góðum möguleika að bæta við mörkum,\"</I> sagði Logi Ólafsson, þjálfari Víkings R. eftir 4-2 tap gegn FH í kvöld.

Leikurinn var ekki fyrir hjartveika. Víkingar komust í 2-0 yfir, en FH setti síðan þrjú mörk á fjórum mínútum og komst í 3-2. Þeir skoruðu síðan fjórða markið áður en fyrri hálfleiknum lauk.
„Þeir skora og síðan kemur þriggja mínútna óútskýranlegt hrun,\" sagði Logi fúll eftir leikinn í kvöld.

„Ég hef verið lengi í þessum bransa og aldrei í lífinu hef ég upplifað nokkuð líkt þessu.\"

„Stíllinn hefur verið sá að við höfum verið að fá á okkur mörk í upphafi leikjanna - það gerðist ekki í kvöld. Okkur tókst að skora tvö mörk á undan mótherjanum og maður ól þá von í brjósti að við gætum fylgt á eftir þessu, en svo koma þessi mörk.\"

„Við hefðum getað komið okkur nokkuð þægilega fyrir með sigri í leiknum eða með stigi, en það tókst ekki.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.