14.10.13 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Carlton Cole til West Ham aftur (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Carlton Cole hefur skrifað undir þriggja mánaða samning við West Ham. Þessi þrítugi sóknarmaður yfirgaf félagið í sumar og átti í viðræðum við nokkur félög.
Cole fór þó að æfa að nýju með West Ham með þá von að fá nýjan samning ef hann gæti sýnt fram á að vera í fínu standi.
Cole fór þó að æfa að nýju með West Ham með þá von að fá nýjan samning ef hann gæti sýnt fram á að vera í fínu standi.
Cole hefur nú samið til næstu þriggja mánaða og vonast eftir því að fá framlengingu í janúar.
Hann er kominn með leikheimild og gæti komið við sögu gegn Manchester City á laugardag. Hann kom fyrst til West Ham 2006 og lék næstum 250 leiki fyrir félagið.
Hann er kominn með leikheimild og gæti komið við sögu gegn Manchester City á laugardag. Hann kom fyrst til West Ham 2006 og lék næstum 250 leiki fyrir félagið.
