Fotbolti.net
14.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Bandaríkin komu til baka gegn heimsmeisturunum

Putellas skoraði fyrir Spán

Putellas skoraði fyrir Spán

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Bandaríkin og heimsmeistarar Spánar gerðu 2-2 jafntefli í vináttulandsleik kvenna sem fram fór í Bandaríkjunum í nótt.
Nokkrir dagar eru liðnir síðan Spánn vann Bandaríkin, 2-0, og voru þær spænsku nálægt því að ná í annan sigur gegn sterku liði Spánverja.

Alexia Putellas og Salma Paralluelo skoruðu mörk Spánar á fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik en Ashley Sanchez minnkaði muninn fyrir Bandaríkin snemma í þeim síðari. Mallory Swanson jafnaði þá metin þegar lítið var eftir og niðurstaðan 2-2 jafntefli.

Bæði lið undirbúa sig af krafti fyrir heimsmeistaramótið sem fer fram í Brasilíu á næsta ári.

Spánn hefur þegar tryggt sér sæti á HM eftir að hafa unnið sinn riðil í undankeppninni. Bandaríkin eiga hins vegar enn eftir að tryggja sér sæti en liðið mætir El Salvador í átta liða úrslitum CONCACAF-keppninnar í næsta mánuði þar sem sigur myndi tryggja því farseðilinn til Brasilíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.