Fotbolti.net
14.11.16 - 12:38
Magnús Már Einarsson

Maltneskir fjölmiðlamenn fengu fjölda bolamynda með Gylfa

Auglýsing
Gylfi var mjög vinsæll á æfingu í morgun.  Hér er hann með maltneskum blaðamanni sem fékk nokkrar myndir með Gylfa.

Gylfi var mjög vinsæll á æfingu í morgun. Hér er hann með maltneskum blaðamanni sem fékk nokkrar myndir með Gylfa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Icelandair
Maltneskir fjömiðlar stukku á Gylfa Þór Sigurðsson og fleiri íslenska landsliðsmenn um leið og þeir mættu á æfingu Ta\'Qali leikvanginum í dag.

Þeir byrjuðu þó ekki á að taka viðtöl við Gylfa heldur var sett í forgang hjá fjölmiðlamönnunum að fá bolamyndir með honum og eiginhandaráritanir.
„Þetta er algjör meistari. Þetta er toppmaður,\" sagði Gylfi um einn blaðamanninn sem elti Gylfa á röndum og fékk nokkrar myndir með honum sem og áritanir.

Gylfi og aðrir íslenskir landsliðsmenn fá mun meiri athygli en áður eftir frábæra frammistöðu á EM í sumar.

„Við finnum það í gegnum ferðalögin og hvernig fjölmiðlar eru að mæta á æfingar og leiki hjá okkur. Það er miklu meira en það var. Það fylgir þessu góða gengi á Evrópumótinu í sumar.\"

Gylfi er meiddur og verður ekki með gegn Möltu á morgun í lokaleik ársins hjá landsliðinu. Um er að ræða sautjánda leikinn hjá landsliðinu á þessu magnaða ári.

„Ef þú lítur á hvar við vorum fyrir 4-5 árum og hvar við erum nuna þá hefur þetta verið frábært ár fyrir landsliðið og okkur leikmenn,\" sagði Gylfi.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar ræðir hann meiðslin meira.
Gylfi í myndatöku.

Gylfi í myndatöku.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Maltneskir fjölmiðlamenn fengu fjölda bolamynda með Gylfa
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Aron Einar í myndatöku.

Aron Einar í myndatöku.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.