Fotbolti.net
14.11.19 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Ítalski boltinn

AC Milan setur menn á sölulista til að safna fyrir Zlatan

AC Milan setur menn á sölulista til að safna fyrir Zlatan
Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan er sagt vera tilbúið að selja þrjá leikmenn í janúar til að fjármagna samning fyrir framherjann Zlatan Ibrahimovic.

Hinn 38 ára gamli Zlatan gæti verið á leið til AC Milan á nýjan leik en Napoli og Bologna eru einnig að slást um hann.

Sagt er að AC Milan sé tilbúið að bjóða Zlatan 3,5 milljón punda í árslaun.
AC Milan er í 14. sæti í Serie A en félagið hefur sett Fabio Borini, Franck Kessie og Ricardo Rodriguez á sölulista til að fjármagna samninginn fyrir Zlatan og afla tekna.

Borini, Kessie og Rodriguez gætu því allir verið á förum frá AC Milan í janúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.