Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 14. nóvember 2021 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mourinho er að gera Abraham að skrímsli
Mynd: Getty Images
Tammy Abraham gekk til liðs við Roma frá Chelsea í sumar. Hann hefur leikið 17 leiki og skorað 7 mörk.

Jose Mourinho er stjóri Roma en liðið er í 6. sæti Serie A og í 2. sæti í C-riðli Sambandsdeildarinnar, einu stigi á eftir Alfons Sampsted og félögum í Bodö/Glimt en Bodö hefur náð fjórum stigum af Roma.

Abraham segir að Mourinho hafi kennt honum að vera ákveðnari.

„Mourinho sagði mér bara að vera skrímsli. Eitt af því sem hann sagði var að ég þyrfti að sýna ákveðni sem framherji eftir því sem ég eldist. Þetta snýst ekki um að vera næs á vellinum. Maður verður að hræða varnarmenn og mér finnst ég vera læra það og verða betri í því."
Athugasemdir
banner
banner
banner