Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 14. desember 2018 09:16
Magnús Már Einarsson
Anna Rakel til Linköpings (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Anna Rakel Pétursdóttir, leikmaður Þórs/KA, hefur gengið til liðs við Linköpings FC í Svíþjóð.

Anna Rakel skrifaði undir tveggja ára samning hjá Linköpings.

Lingköpings endaði í fimmta sæti í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en slakur endasprettur kom í veg fyrir að liðið myndi enda ofar.

Anna Rakel er tvítug en þrátt fyrir ungan aldur hefur hún leikið 81 leik í Pepsi-deildinni með Þór/KA og skorað í þeim tíu mörk.

Anna Rakel varð Íslandsmeistari með Þór/KA í fyrra en hún á fjóra A-landsleiki að baki.



Athugasemdir
banner
banner
banner