Fotbolti.net
15.01.20 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Fleiri framherjar í boði fyrir Tottenham

Ze Luis.

Ze Luis.

Canon

Mynd: Getty Images

Porto hefur boðið Tottenham að fá framherjann Ze Luis á láni út tímabilið.

Tottenham er í leit að framherja eftir að ljóst varð að Harry Kane spilar ekkert fyrr en í fyrsta lagi í apríl vegna meiðsla.

Napoli hefur boðið Tottenham að fá Fernando Llorente á láni og félagið hefur einnig verið að skoða pólska framherjann Krzysztof Piatek hjá AC Milan.
Luis er nýjasti leikmaðurinn sem Tottenham býðst að fá en hann er 28 ára gamall landsliðsmaður Grænhöfðaeyja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.