Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 15. janúar 2022 09:00
Victor Pálsson
MK Dons samdi við markmann Chelsea (Staðfest)
Mynd: EPA
MK Dons hefur fengið liðsstyrk í þriðju deild Englands og samdi við markvörð í gær.

Markvörðurinn heitir Jamie Cumming en hann kemur til félagsins frá Evrópumeisturum Chelsea.

Cumming þykir öflugur markvörður en hann er 22 ára gamall og lék með Stevenage á síðustu leiktíð þar sem hann hélt hreinu í 18 leikjum af 47.

Hann hefur leikið með Gillingham í láni á þessu tímabili og lék þar 22 deildarleiki fyrir félagið.

MK Dons leikur í ensku þriðju deildinni og er það mikill liðsstyrkur að fá Cumming sem á að baki leiki fyrir U17 og U19 landslið Englands.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner