Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 15. janúar 2022 12:55
Brynjar Ingi Erluson
Steinþór Freyr áfram hjá KA (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Steinþór Freyr Þorsteinsson verður áfram hjá KA en hann framlengdi samning sinn við félagið út tímabilið.

Steinþór, sem er 36 ára gamall, er að fara inn í sjötta tímabil sitt með KA en hann kom til félagsins frá Viking árið 2017.

Hann á að baki 76 leiki og 5 mörk í deild- og bikar með KA en hann lék fimmtán leiki í Pepsi Max-deildinni á síðasta tímabili.

Steinþór framlengdi í dag samning sinn við KA og mun hann því leika með liðinu út tímabilið.

KA hafnaði í 4. sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðasta tímabili með 40 stig
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner