Fotbolti.net
15.02.21 - 23:02
Brynjar Ingi Erluson

Björn Axel í Gróttu (Staðfest)

Birgir Tjörvi Pétursson, formaður meistaraflokksráðs, og Björn Axel Guðjónsson við undirskrift

Birgir Tjörvi Pétursson, formaður meistaraflokksráðs, og Björn Axel Guðjónsson við undirskrift

Canon

Mynd: Grótta

Björn Axel Guðjónsson er genginn til liðs við Gróttu frá KV en þetta kemur fram í tilkynningu frá Gróttu í kvöld.
Björn Axel er fæddur árið 1994 og uppalinn í Gróttu en hann hefur spilað síðustu tvö tímabil með KV.

Hann skoraði 10 mörk í 18 leikjum fyrir KV í 3. deildinni á síðustu leiktíð er KV flaug upp í 2. deildina.

Hann á að baki 20 leiki og 4 mörk í deild- og bikar með Gróttu en auk þess hefur hann spilað með Njarðvík, KFS og KFR.

Björn er nú genginn til liðs við uppeldisfélagið og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni en liðið féll úr Pepsi Max-deildinni á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.