Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 15. mars 2021 16:30
Magnús Már Einarsson
Einherji ræður þjálfara og aðstoðarþjálfara (Staðfest)
Brianna Curtis
Brianna Curtis
Mynd: Einherji
Brianna Curtis hefur verið ráðin spilandi þjálfari hjá Einherja í 2. deild kvenna.

Brianna er 24 ára og frá Colorado. Hún hefur leikið fótbolta alla sína ævi og dreymt um að koma til Íslands. Hún segist þakklát traustinu og getur sjálf ekki beðið eftir sumrinu.

Auk þess hefur félagið ráðið með henni spilandi aðstoðarþjálfara; hina bandarísku Taryn Siegele.

Taryn hefur m.a. spilað í háskólaboltanum í Bandaríkjunum auk þess að spila með FC Djursjolm í Svíþjóð.

Taryn segist afskaplega spennt að fá tækifæri til að spila fyrir Einherja. Hún hlakkar til að flytja til Íslands og til komandi tímabils.
Athugasemdir
banner
banner
banner