Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 15. mars 2021 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Mamic dæmdur í fangelsi - Hættur hjá Zagreb (Staðfest)
4 ár og 8 mánuðir.
4 ár og 8 mánuðir.
Mynd: Getty Images
Zoran Mamic er búinn að segja starfi sínu lausu sem aðalþjálfari meistaraflokks Dinamo Zagreb í Króatíu.

Mamic var dæmdur til tæplega fimm ára fangelsisvistar í stóru mútumáli í Króatíu.

Króatíski fótboltasnillingurinn Luka Modric var einnig viðriðinn málið en sýknaður fyrir rúmum tveimur árum.

Dinamo Zagreb er besta liðið í Króatíu og trónir á toppi deildarinnar með tveggja stiga forystu á næsta lið og leik til góða. Þá á liðið erfiðan leik við Tottenham Hotspur í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner