Sigríður Emma er fyrirliði nýliðanna í Grindavík/Njarðvík sem komnir eru upp úr Lengjudeildinni og í Bestu deildina í fyrsta sinn. Hún hefur leikið allan sinn feril með Grindavík.
Hún kom við sögu í 17 af 18 leikjum liðsins í fyrra og skoraði svo þrjú mörk í fimm leikjum í Lengjubikarnum í vetur. Hún er hægri bakvörður og sýnir í dag á sér hina hliðina.
Hún kom við sögu í 17 af 18 leikjum liðsins í fyrra og skoraði svo þrjú mörk í fimm leikjum í Lengjubikarnum í vetur. Hún er hægri bakvörður og sýnir í dag á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Sigríður Emma Fanndal Jónsdóttir
Gælunafn: alltaf kölluð Emma
Aldur: 21
Hjúskaparstaða: í sambandi
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: 21. júní 2020 eina sem ég man er að leikurinn var stoppaður eftir ca tvær mínútur út af því ég fór inn á með eyrnalokka:)
Uppáhalds drykkur: Ramonade nocco
Uppáhalds matsölustaður: Hjá Höllu all time fav
Uppáhalds tölvuleikur:
Áttu hlutabréf eða rafmynt: nei
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Love island
Uppáhalds tónlistarmaður: Justin Bieber og Tate Mcrae
Uppáhalds hlaðvarp: Teboðið
Uppáhalds samfélagsmiðill: Tiktok
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: fotbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: Steindi og Hjörvar Hafliða
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst:
Emmajonsdottir, timinn þinn er kl. 11:00 a morgun - M harstofa
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Gróttu
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Samantha Smith
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Margir góðir en ég segi Jón Óli Daníelsson og Gylfi Tryggvason
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Olga Sevcova í ÍBV
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Margrét Lára Viðarsdóttir og Sara Hrund Helgadóttir
Sætasti sigurinn: Mun seint gleyma sigrinum á HK um að komast upp í fyrra
Mestu vonbrigðin: fá ekki að spila á Stakkavíkurvelli og að Hópið (innanhúss höllin) í Grindavík sé ónýtt og maður geti aldrei æft þar inni aftur
Uppáhalds lið í enska: Manchester United
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Myndi alltaf taka Una Rós Unnarsdóttir til baka úr Fram
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: kóngarnir Eydís María Waagfjörð og Júlía Rán Bjarnadóttir
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Ármann Ingi Finnbogason
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Nadía Atladóttir
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: væri til í að maður færi ekki í bann fyrir of mörg gul, alltaf smá bras á mér þegar líður á tímabilið
Uppáhalds staður á Íslandi: Grindavík, sérstaklega Stakkavíkurvöllur
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: hljóp óvart niður dómarann í leik í fyrra, duttum bæði og hann meiddi sig greyið en honum fannst þetta alveg fyndið
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: spila alltaf í sama íþróttatoppnum
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: já, ég fylgist með körfunni
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike mercurial vapor
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Spænska er up there
Vandræðalegasta augnablik:
Þetta var í leik í fyrra, Brookelynn skoraði mark og hleypur að stúkunni að fagna og ég hleyp auðvitað á eftir henni að fagna með henni nema við erum ekki á sömu blaðsíðu því ég ætlaði að hoppa upp á bakið á henni en á sama tíma beygir hún sig niður og ég enda á að hoppa yfir hana og faceplanta beint fyrir framan alla í stúkunni…
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: myndi alltaf velja Ásu Björg Einarsdóttir og Júlíu Ruth Thasaphong og svo verð ég að taka my fellow brautar rúntara Rakel Rós og Eydísi Maríu - Þetta eru bara stemningskonur þannig held þetta myndi ekki klikka
Bestur/best í klefanum og af hverju: Natasha Anasi get hlegið endalaust að henni
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: myndi vilja sjá Brynju Pálma í Love Island við liðið höfum fengið sýnishorn af því og held að hún og áhorfendur myndu ekki hata það
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Frekar steikt en ég vann silfurverðlaun fyrir sveinspróf í framreiðslu
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Það hefur komið mer mest á óvart hvað Natasha er mikill meistari og geggjaður liðsfélagi!!
Hverju laugstu síðast: laug líklegast síðast að systrum mínum að ég væri ekki með fötin þeirra
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: held ég segi upphitun og vera í tapliðinu
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern Myndiru spyrja: myndi spyrja David Beckham um selfie;))
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: mætið á völlinn í sumar, við lofum alvöru veislu!!


