Fotbolti.net
17.10.26 - 22:35
Ívan Guðjón Baldursson

Vildu reka hann en eru núna smeykir um að missa hann

Vildu reka hann en eru núna smeykir um að missa hann
Canon

Mynd: EPA

Þýski þjálfarinn Fabian Hürzeler er að gera frábæra hluti hjá Brighton & Hove Athletic en það er ekki langt síðan stuðningsmenn vildu sjá hann fjúka úr starfinu.
Sagður efstur á óskalistanum ef Carrick verður rekinn
TENGT EFNI

Sagður efstur á óskalistanum ef Carrick verður rekinn

Hurzeler tók við Brighton í júní 2024 og stýrði liðinu í áttunda sæti á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn. Gengið var ekki jafn gott á síðustu leiktíð og var Brighton í slæmri stöðu í febrúar. Liðið sat í 14. sæti stöðutöflunnar í ensku úrvalsdeildinni og hafði aðeins unnið einn leik af síðustu tólf.

Áhorfendur sungu að Hurzeler yrði rekinn í fyrramálið eftir tap á heimavelli gegn Crystal Palace. Brighton tapaði næstu tveimur leikjum gegn Aston Villa og Liverpool en skipti svo um gír og fór á svakalega sigurgöngu sem fleytti liðinu aftur upp í 8. sætið.

„Það eru bara tveir möguleikar í stöðunni. Við gefumst upp eða leggjum meira á okkur og ég veit alveg hvaða möguleika ég vel fyrir mitt líf," sagði Hurzeler eftir tapið gegn Palace.

Brighton gerði frábæra hluti síðasta vor og hefur farið gríðarlega vel af stað á nýju úrvalsdeildartímabili, þar sem liðið er með 13 stig eftir 6 umferðir. Brighton tekur einmitt á móti Crystal Palace í spennandi slag á morgun.

Hurzeler var yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann var ráðinn til Brighton. Hann er 33 ára gamall og því eru nokkrir leikmenn liðsins eldri en hann.

Brighton vann magnaðan 3-0 sigur á Englandsmeisturum Arsenal fyrir landsleikjahlé og eru stuðningsmennirnir sem vildu láta reka hann í febrúar núna smeykir um að einhverju stórveldi takist að lokka hann í burtu frá félaginu.

Hurzeler hefur einna helst verið orðaður við þjálfarastarfið hjá Manchester United í ljósi slæms gengis á upphafi nýs tímabils undir stjórn Michael Carrick.
Vildu reka hann en eru núna smeykir um að missa hann
Canon

Mynd: EPA

Vildu reka hann en eru núna smeykir um að missa hann
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.