| mið 15.apr 2026 14:30 Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson |
|
Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 9. sæti
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í níunda sæti er Leiknir úr Breiðholti.
Það er vonandi fyrir Leikni að Karan Gurung komist aftur inn á fótboltavöllinn af krafti.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. Leiknir R., 95 stig
10. Grótta, 68 stig
11. Ægir, 51 stig
12. Völsungur, 15 stig
9. Leiknir R.
Síðustu tvö tímabil hafa í raun verið spegilmynd hvort af öðru hjá Leikni. Liðið hefur byrjað hrikalega illa, lent strax undir pressu og brugðist við með því að skipta um þjálfara snemma sumars. Það er aldrei góð uppskrift að stöðugleika. Leiknisgoðsögnin Óli Hrannar Kristjánsson byrjaði síðasta tímabil sem þjálfari liðsins eftir að hafa bjargað því þægilega tímabilið árið áður, en ævintýrið varð stutt. Hann var látinn taka pokann sinn eftir að liðið fékk á sig sex mörk í tveimur leikjum í röð snemma sumar og þá var enn og aftur farið í endurstillingu. Leiknir náði að bjarga sér að lokum í fyrra, en það var meira bras en menn vilja sjá í Breiðholtinu. Þetta er félag sem vill vera að horfa upp töfluna, ekki niður hana. Spurningin fyrir þetta tímabil er einföld: Læra þeir af reynslunni eða fer þetta í sama farið aftur?
Þjálfarinn: Þriðja tímabilið í röð mæta Leiknismenn til leiks með nýjan þjálfara í brúnni. Í þetta skiptið er það Brynjar Björn Gunnarsson sem stýrir skútunni. Brynjar býr yfir mikilli reynslu og var sérstakur meðþjálfari Víkings síðasta sumar. Áður hefur hann þjálfað HK, Örgryte og Grindavík auk þess sem hann var aðstoðarþjálfari hjá Stjörnunni og Fylki. Þá á hann að baki afar farsælan leikmannaferil erlendis með Stoke, Nottingham Forest, Watford og Reading á Englandi, Vålerenga í Noregi og Örgryte í Svíþjóð ásamt því að hafa leikið 74 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Brynjar hefur reynslu af því að koma liði upp úr þessari deild en hann gerði það með HK á sínum tíma.
Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Geti bundið saman þessa sterku Leiknisfjölskyldu
„Leiknismenn mæta inn í tímabilið með Brynjar Björn við stjórnvölinn sem ég tel vera flott fyrir þá, þeir hafa þurft einhverja ferska vinda inn í starfið eftir erfið ár undanfarið eða í raun frá brotthvarfi Sigga Höskulds. Gústi kom með flotta orku inn hjá þeim í fyrra en lagði svo þjálfaramöppuna á hilluna."
„Leiknir hefur alltaf byggt sig upp á ákveðinni fjölskyldustemningu og mikið af heimafólki í kringum liðið í öllum regnbogans hlutverkum sem er styrkleiki. Ég er viss um að Brynjar Björn muni geta bundið saman þessa sterku Leiknisfjölskyldu og einhverskonar árangur hjá liðinu sem gleður fólkið í hverfinu, þeir eiga slatta af spennandi uppöldum strákum og öðrum ungum sem hafa komið og byggt upp flottan kjarna í liðinu."
Lykilmenn: Daði Bærings Halldórsson og Shkelzen Veseli
Daði Bærings hefur verið fyrirliði Leiknismanna síðustu árin og hann er hjartað í liðinu. Hefur spilað með Leikni upp alla yngri flokka og allan tímann í meistaraflokki líka. Hann er öflugur miðjumaður sem stýrir spilinu í Breiðholtinu. Shkelzen Veseli er líka uppaldur strákur sem átti mjög flott sumar í fyrra. Teknískur leikmaður sem getur gert alls konar hluti inn á fótboltavellinum. HK og Þróttur vildu fá hann á síðasta ári og þá hefur Valur gert nokkrar tilraunir til að kaupa hann frá Leikni í vetur. Það er þó útlit fyrir það að Shkelzen verði áfram í Breiðholti sem er mjög mikilvægt fyrir Leiknismenn.
Gaman að fylgjast með: Karan Gurung
Karan Gurung, ungur og afar efnilegur leikmaður Leiknis, meiddist illa fyrir síðasta tímabil og gat ekkert tekið þátt. Það er vonandi fyrir Leiknismenn að hann komist aftur á völlinn af fullum krafti í sumar því þarna er mikið efni á ferðinni. Karan hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað fimm leiki með Leikni í Lengjudeildinni. Hann átti að fá stærra hlutverk síðasta sumar þar sem hann spilaði mikið um veturinn. Hann hefur verið hluti af yngri landsliðum Íslands og er mjög spennandi.
Komnir:
Marko Veselinovic frá Búlgaríu
Viktor Andri Pétursson frá Augnabliki
Árni Elvar Árnason frá Fjölni
Rúrik Gunnarsson frá HK (var á láni hjá Grindavík)
Davíð Jónsson frá Víkingi
Eiríkur Örn Beck frá Haukum
Birnir Breki Burknason frá ÍA á láni
Arnór Valur Ágústsson frá ÍA á láni
Marko Zivkovic frá Kormáki/Hvöt (var á láni)
Bjarki Arnaldarson frá Fram (var á láni)
Farnir:
Aron Einarsson í Njarðvík
Patryk Hryniewicki í Fjölni
Dusan Brkovic til Serbíu
Róbert Quental Árnason í HK
Jónatan Ari Bragason til Gróttu
Davíð Júlían Jónsson í KB
Samningslausir:
Sindri Björnsson
Óskar Jónsson
Fyrstu þrír leikir Leiknis:
25. apríl, Völsungur - Leiknir R. (GPG völlurinn)
1. maí, Grótta - Leiknir R. (Vivaldivöllurinn)
8. maí, Leiknir R. - Afturelding (Domusnovavöllurinn)



