Fotbolti.net
15.05.13 - 15:21
Magnús Már Einarsson

Andri Már í KF (Staðfest)

Andri Már í KF (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Nýliðar KF í 1. deildinni hafa fengið Andra Má Hermannsson til liðs við sig á láni frá Fylki.

Þessi tvítugi leikmaður kom inn á sem varamaður á hægri kantinn hjá Fylki gegn Fram í vikunni en nú er ljóst að hann mun fara til KF á láni.
Andri hefur samtals leikið 21 deildar og bikarleik með Fylki síðan hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2010.

Þá hefur Andri einnig leikið með U19 og U17 ára landsliði Íslands.

Andri Már getur leikið sinn fyrsta leik með KF þegar liðið heimsækir Leikni R. í 1. deildinni á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.