15.05.13 - 17:30
Magnús Már Einarsson
James Frayne í ÍBV (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Framherjinn James Frayne hefur fengið félagaskipti í ÍBV frá Englandi. Hann mun í kjölfarið fara beint í KFS á láni í einn mánuð.
Frayne hefur æft með ÍBV undanfarnar vikur en hann æfði fyrst með liðinu í æfingarferð á Englandi fyrir tilstuðlan aðstoðarþjálfarans David James.
Frayne kom meðal annars inn á í hálfleik í leik ÍBV gegn varaliði Bournemouth og stimplaði sig strax inn með marki.
Á sínum tíma var Frayne í unglingaliði Liverpool en þessi 26 ára gamli leikmaður hefur verið í fríi frá fótbolta undanfarin ár.