15.05.13 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Kjartan Guðjónsson í Aftureldingu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding hefur bætt við sig leikmanni en það er sóknarmaðurinn Kjartan Guðjónsson sem kemur á láni frá ÍBV.
Kjartan er á 21. aldursári en síðustu ár hefur hann leikið með KFS í Vestmannaejum í neðstu deild.
Í fyrra skoraði hann fimm mörk í ellefu leikjum fyrir KFS í deild og bikar. Þess má geta að hann skoraði eina mark ÍBV þegar liðið mætti Portsmouth og tapaði 2-1 í vináttuleik í apríl.
Afturelding leikur í 2. deildinni en liðið vann Njarðvík 3-1 í fyrstu umferð. Á laugardaginn mætir liðið Hetti á heimavelli sínum í Mosfellsbæ.