15.05.13 - 11:10
Magnús Már Einarsson
Sigurvin Ólafson í KV (Staðfest)

Sigurvin Ólafsson.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Sigurvin Ólafsson.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Miðjumaðurinn reyndi Sigurvin Ólafsson hefur gengið til liðs við KV í 2. deildinni.
Sigurvin lék þrjá leiki með Fylki síðari hlutann á síðasta tímabili eftir að hafa leikið með SR í 3. deildinni fyrr um sumarið.
Þessi 36 ára gamli reynslubolti spilaði með ÍBV, Fram, KR og FH áður en hann gekk í raðir Gróttu 2008 og spilaði á Seltjarnarnesi í þrjú ár.
Sigurvin getur spilað sinn fyrsta leik með KV þegar liðið heimsækir Ægi í 2. deildinni á laugardag.
Uppfært:
KV staðfesti við Fótbolta.net að Ingólfur Sigurðsson kæmi einnig til félagsins en á síðustu stundu breyttist staðan og þær fréttir því dregnar til baka.