15.05.13 - 15:00
Elvar Geir Magnússon
Sóknarmaðurinn Vladica Djordjevic í Völsung (Staðfest)

Úr síðasta leik Völsungs.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Völsungur í 1. deildinni hefur fengið til sín serbneskan framherja sem er 32 ára gamall.
Vladica Djordjevic heitir kappinn en hann var næstum kominn í íslenska boltann fyrir fjórum árum þegar hann æfði með Val í æfingaferð í Tyrklandi,

Slóvenski sóknarmaðurinn Dejan Bozicic hefur hinsvegar verið sendur heim þar sem hann þótti ekki standa undir væntingum.
Völsungur er nýliði í 1. deild en liðið tapaði fyrir BÍ/Bolungarvík í fyrstu umferð og leikur gegn Tindastóli á laugardag.