Fotbolti.net
15.05.13 - 18:45
Magnús Már Einarsson

Víkingur Ó. fær spænskan miðvörð (Staðfest)

Úr leik Víkings Ó. og Stjörnunnar um síðustu helgi.

Úr leik Víkings Ó. og Stjörnunnar um síðustu helgi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur Ólafsvík hefur krækt í spænska varnarmanninn Insa Bohigues Fransisco eða Kiko Insa.

Insa er 25 ára gamall miðvörður en hann spilaði síðast með Club Rápido de Bouzas í spænsku D-deildinni.
Insa er annar leikmaðurinn sem Ólafsvíkingar fá í sínar raðir í dag en Arnar Már Björgvinsson er einnig kominn til félagsins frá Breiðabliki á láni.

Í gær kom króatíski varnarmaðurinn Mate Dujilo einnig til Ólafsvíkinga.

Allir leikmennirnir eru löglegir fyrir leik liðsins gegn Keflavík í Pepsi-deildinni annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.