Fotbolti.net
15.05.18 - 22:01
Unnar Jóhannsson

Orri: Ánægður með karakterinn og kraftinn í mínu liði

Auglýsing
Orri: Ánægður með karakterinn og kraftinn í mínu liði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hertz
Orri Þórðarsson var sáttur með sínar stelpur eftir 2-1 sigur á KR í Vesturbænum í kvöld.
„Ég var mjög sáttur með þær, það var númer 1,2 og 3 að vinna leikinn, í fyrstu tveimur leikjunum höfum við verið sofandi í fyrri hálfleik.\" sagði Orri





„Eftir smá skjálfta fyrstu 2-3 min fannst mér við taka yfir leikinn og gera vel, við vorum klaufar að fá okkur þetta jöfnunarmark en rosalega ánægður með karakterinn að rísa upp og ná inn sigurmarkinu.\" sagði Orri

„KR er með flott lið og vel skipulagt, þær eru með stelpur sem eru reyndar, hafa verið landsliðsmenn og í atvinnumennsku og kunna leikinn, þannig að við vissum að þetta er erfitt lið viðureignar.\" sagði Orri aðspurður um KR liðið.

„Nei það er ekkert að gerast, ég er ánægður með hópinn og treysti þessum stelpum fyrir verkefninu framundan.\" sagði Orri spurður út í það hvort von væri á liðsstyrk í Hafnarfjörðinn.


Nánar er rætt við Orra hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.