Edouard Mendy, markvörður Chelsea, varði eina vítaspyrnu í tapinu gegn Liverpool í úrslitum enska bikarsins í gær, en hann varði þá frá landa sínum, Sadio Mané.
Mané tók fimmtu spyrnu Liverpool í vítakeppninni en hann hefði getað tryggt liðinu sigur.
Hann mætti þar Mendy en þeir þekkjast ansi vel og hafa spilað með senegalska landsliðinu síðustu ár.
Mendy las Mané og varði frá honum en Jürgen Klopp tekur hluta af sökinni á sig.
„Ég tek að minnsta kosti 50 prósent ábyrgð á vítinu hans Sadio, því maður verður að leyfa strákunum að gera það sem þeir hafa tilfinningu fyrir. Ég sagði við Sadio: Hann þekkir þig mjög vel, þannig gerðu öfugt við það sem hann heldur að þú gerir," sagði Klopp.
Athugasemdir