Fotbolti.net
15.05.24 - 22:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Davíð Smári: Hefði kannski átt að sleppa því að tala um það

Auglýsing
'Þetta er svekkjandi en ég er griðarlega sáttur með vinnuframlagið'

'Þetta er svekkjandi en ég er griðarlega sáttur með vinnuframlagið'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
„Við fáum á okkur tvö mörk frekar fljótt í seinni hálfleik þrátt fyrir að það hafi verið mikið talað um það í hálfleik að við ætluðum að halda fókus og ekki láta þetta gerast. Kannski hefði maður átt að sleppa því að tala um það, svona er bara fótboltinn," sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, eftir tap gegn KA í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag.

Vestri tók forystuna í uppbótartíma fyrri hálfleiksins en heimamenn í KA voru nokkuð fljótir að snúa taflinu við í seinni hálfleik.
„Ég er samt gríðarlega ánægður með liðið mitt, gríðarlega ánægður með það sem menn lögðu í leikinn. Mér fannst við skapa helling í þessum leik, komum okkur í fullt af ákjósanlegum stöðum, vantaði kannski pínu upp á hjá okkur á síðasta þriðjungi. Þetta er svekkjandi en ég er griðarlega sáttur með vinnuframlagið alveg fram á 97. mínútu."

KA jafnaði og komst yfir eftir hornspyrnur.

„Bæði mörkin á fjærstönginni. Svekkjandi. Ég hélt að Marvin væri með annan boltann, hann fer einvhern veginn fer fram úr honum. Slæm mörk að fá á sig og slæmur tími að fá þau á sig. Við urðum fyrir dálítið af áföllum í dag og höfum orðið fyrir dálítið af áföllum í sumar. En mér fannst við sýna að það er fátt sem bítur á okkur. Ég verð að vera stoltur af liðinu mínu. Ég er stoltur af því hvar við erum sem fótboltalið í dag."

„Það hefur verið mikið í umræðunni að við erum aðeins að vinna í öðruvísi aðstæðum. Það er bara eins og það er. En þú sérð að vinnuframlagið er til staðar og ef við tökum þetta með inn í næstu leiki og inn í sumarið þá erum við bara á fínum stað í sumar."


Tóku enga sénsa með Elmar
Davið talaði um áföll í sumar en liðið hefur í byrjun móts misst þá Fatai Gbadamosi og Eið Aron Sigurbjörnsson í langtíma meiðsli. Í dag fóru þeir Friðrik Þórir Hjaltason og Elmar Atli Garðarsson af velli í fyrri hálfleik vegna meiðsla.

„Friðrik fór í nára og ég veit ekki nákvæmlega stöðuna á Elmari. Honum leið eins og það hefði eitthvað gerst inni í eyranu á sér og var ekki alveg í jafnvægi. Við tókum enga sénsa með það."

„Þeir fara út og mér fannst þeir sem komu inn standa sig mjög vel. Þrátt fyrir að við séum ekki með stærsta hópinn í deildinni þá finnst mér allir klárir og á ákveðinni vegferð. Staðan er sú að við ætlum okkur ákveðna hluti í sumar og fyrsta markmið er að halda okkur í deildinni. Ég held að við gerum það með þessari frammistöðu."


Pirrandi meiðsli
Tarik Ibrahimagic var ekki með í kvöld og er tæpur fyrir leikinn gegn Víkingi. Enn er svo óvíst hvenær varnarmaðurinn Morten Ohlsen snýr aftur.

„Það hefur gengið erfiðlega að fá almennilega greiningu á þessu. Við vorum að vona að hann gæti tekið þátt í dag en svo kom ákveðið bakslag í það. Ég get ekki svarað þessu með Morten, eins pirrandi og það er. Hann er búinn að vera frá síðan í fyrsta leik," sagði Davíð.

Í viðtalinu ræðir hann um næsta leik gegn Víkingi og heimavöllinn á Ísafirði. Viðtalið má nálgast í spilaranum efst.
Fyrirliðinn Elmar Atli.

Fyrirliðinn Elmar Atli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Morten meiddist gegn Fram.

Morten meiddist gegn Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.