„Eftirminnilegasti leikur sem ég hef unnið við í sjónvarpi"

Það sauð allt upp úr.

Mynd: Fótbolti.net

Boltasækjararnir fylgdust með.

Mynd: Fótbolti.net

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, ekki sáttur.

Mynd: Fótbolti.net

Það sauð allt upp úr.

Mynd: Fótbolti.net
Það er stórleikur í kvöld þegar Víkingur og Breiðablik eigast við í Bestu deild karla. Þessi lið hafa spilað marga eftirminnilega leiki á síðustu árum en mögulega er sá allra eftirminnilegasti frá árinu 2023.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 24. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría vikuáskrift.

Það er erfitt að gleyma leiknum 2023 þar sem allt sauð upp úr eftir lokaflautið. Gunnlaugur Jónsson var á staðnum að taka viðtöl fyrir Sýn Sport og sagði Fótbolta.net frá upplifun sinni.
„Þetta er bara einn af þessum stóru leikjum sem fólk gleymir ekki," segir Gunnlaugur.
„Það muna allir eftir atvikinu með Bjarna Guðjóns á móti Keflavík á Skaganum eða leik FH og Stjörnunnar í Krikanum. Þessi leikur er í þeim flokki."
Gunnlaugur var sjálfur við störf á hliðarlínunni þegar átökin brutust út. „Ég gleymdi mér aðeins í hita leiksins og ætlaði eiginlega að bjarga Loga Tómassyni úr átökunum þar sem ég hélt að hann væri enn leikmaður minn í Þrótti. Svo fattaði ég nú fljótlega að ég ætti ekki að vera að skipta mér af málum þar sem ég væri að fara að taka viðtöl."
Það sem fylgdi í kjölfarið situr enn í minningunni.
„Ég man að ég kom heim og var bara rafmagnaður. Ég átti erfitt með að sofna. Þetta er eftirminnilegasti leikur sem ég hef unnið við í sjónvarpi," segir Gulli.
Annar eftirminnilegur leikur þessara liða var auðvitað úrslitaleikurinn um sigur í Bestu deildinni haustið 2024. Þá hafði Breiðablik betur og varð Íslandsmeistari á Víkingsvelli.

TENGT EFNI
Varð okkar eigin Klopp og Guardiola slagur