Fotbolti.net
Skagamenn íhuga alvarlega að leggja gervigras á aðalvöllinn

25.06.26

Skagamenn íhuga alvarlega að leggja gervigras á aðalvöllinn

SÆBJÖRN ÞÓR ÞÓRBERGSSON STEINKE

Það er í alvarlegri skoðun á Akranesi að leggja gervigras á keppnisvöllinn, Akranesvöllinn, sem heitir í dag ELKEM völlurinn.

Í vor þurfti ÍA að víxla á heimaleik við Stjörnuna og spila heimaleik sinn við KA inni í Akraneshöllinni þar sem grasvöllurinn var ekki tilbúinn eftir veturinn. Síðasti leikur síðasta haust var þá færður inn í höllina út af veðri.

Fótbolti.net ræddi við Sturlaug Haraldsson sem var fyrr í þessum mánuði ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Sturlaugur tekur formlega við hlutverkinu 19. ágúst. Hann er uppalinn á Akranesi, lék með ÍA á sínum fótboltaferli og van fjölmarga Íslands- og bikarmeistaratitla með liðinu og er í hópi leikjahæstu manna í sögu ÍA. Hann er í dag hluti af aðalstjórn KFÍA.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.