Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. júní 2021 18:04
Victor Pálsson
Byrjunarlið Frakklands og Þýskalands: Benzema fremstur
Mynd: EPA
Það má segja að stærsti leikur fyrstu umferðar EM alls staðar fari fram í kvöld en leikið er í riðli F.

Riðill F er gríðarlega sterkur en þar spila Ungverjaland, Þýskaland, Portúgal og Frakkland.

Heimsmeistarar Frakklands hefja leik í kvöld gegn Þýskalandi en spilað er á Allianz Arena vellinum í Þýskjalandi.

Flestir spá Frakklandi sigri í þessu móti en Þýskaland er gríðarlega sterkur mótherji og er til alls líklegt.

Byrjunarliðin í þessum leik eru klár og má sjá þau hér fyrir neðan.

Frakkland: Lloris, Pavard, Varane, Kimpembe, Hernandez, Kante, Rabiot, Pogba, Griezmann, Benzema, Mbappe

Þýskaland: Neuer, Rudiger, Hummels, Ginter, Gosens, Kroos, Gundogan, Kimmich, Muller, Havertz, Gnabry
Athugasemdir
banner
banner
banner