Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. júní 2021 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Young hefur neitað tveimur tilboðum Inter - Þrjú lið vilja fá hann
Mynd: Getty Images
Ashley Young er eftirsóttur þetta sumarið, hann er samningslaus eftir að hafa orðið meistari með Inter á Ítalíu.

Hann hefur neitað tveimur samningstilboðum frá Inter og er að skoða sín mál. Young er 35 ára og hefur mest spilað vinstri bakvörð eða vængbakvörð að undanförnu.

Úrvalsdeildarfélögin Burnley og Watford hafa rætt við Young og þá hefur bandaríska félagið Inter Miami einnig set sig í samband við Englendinginn.

Watford er uppeldisfélag Young og síðast í gær
var greint frá áhuga Burnley á leikmanninum.
Athugasemdir
banner
banner
banner