Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 15. júní 2022 19:35
Brynjar Ingi Erluson
Besiktas fær Saiss á frjálsri sölu (Staðfest)
Romain Saiss
Romain Saiss
Mynd: Besiktas
Marokkómaðurinn Romain Saiss er genginn í raðir Besiktas á frjálsri sölu frá Wolves.

Þessi 32 ára gamli varnarmaður fékk ekki nýjan samning hjá Wolves eftir tímabilið og var því leyft að fara á frjálsri sölu.

Saiss spilaði 31 deildarleik með Wolves á síðustu leiktíð og skoraði 2 mörk en hann var ekki lengi að finna sér nýtt félag.

Hann er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við tyrkneska félagið Besiktas.

Saiss eyddi sex árum hjá Wolves, spilaði þar 206 leiki og gerði 16 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner