Fotbolti.net
15.06.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Segjast hafa selt 99,6% af miðunum á fyrstu átta leikina

Segjast hafa selt 99,6% af miðunum á fyrstu átta leikina
Canon

Mynd: Reddit

Alþjóðafótboltasambandið FIFA hefur verið gagnrýnt harðlega fyrir ýmis atriði í kringum heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Gagnrýnin er aðallega í kringum gríðarlega há miðaverð á leiki mótsins og afar strangar reglur í kringum hvað áhorfendur geta tekið með sér á leikvanginn.

Sambandið hefur verið gagnrýnt fyrir að einblína á að þéna peninga þar sem hver einasta dauða stund er nýtt til að auglýsa styrktaraðila og selja varning.

Það hefur til dæmis komið í ljós að allar vörur á leikvöngum heimsmeistaramótsins sem ekki eru frá samstarfsaðilum þurfa að vera með hulið nafn og merki eins og má sjá á meðfylgjandi mynd.

Talað hefur verið um að hátt miðaverð á leiki mótsins geti orsakað auð sæti, en samkvæmt tölum frá FIFA tókst Alþjóðafótboltasambandinu að selja 99,6% af miðum á fyrstu átta leiki riðlakeppninnar.

Fjöldi sæta voru auð á öðrum leik HM
TENGT EFNI

Fjöldi sæta voru auð á öðrum leik HM



Það eru ekki allir sannfærðir um tölurnar frá FIFA þó að sambandið sé að birta tölur yfir selda miða frekar heldur en opinberar áhorfendatölur frá leikvöngunum sjálfum.

Samkvæmt tölunum frá FIFA var nánast uppselt á viðureign Suður-Kóreu og Tékklands þrátt fyrir myndir frá leiknum sem sýndu ótalmörg auð sæti. Talið er að áhorfendur sem ekki voru í sætum sínum hafi verið að leita sér skjóls frá hitanum.

FIFA segir að 44.985 miðar af 45.664 hafi selst á leik Kóreu gegn Tékklandi, eða 98,51% af miðunum sem voru í boði.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Segjast hafa selt 99,6% af miðunum á fyrstu átta leikina
Canon

Mynd: EPA

Segjast hafa selt 99,6% af miðunum á fyrstu átta leikina
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.