Kanadabúar þekktu ekki Alphonso Davies

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Alphonso Davies var ekki með Kanada í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins vegna meiðsla.
Davies er sigursælasti og frægasti leikmaður kanadíska landsliðsins en hefur verið að glíma við erfið meiðslavandræði undanfarin ár.
Hann tók ekki þátt í 1-1 jafntefli Kanada, sem leikur á heimavelli á HM, gegn Bosníu í Toronto og ferðaðist svo með landsliðinu til Vancouver þar sem næsti leikur liðsins fer fram, gegn Katar á fimmtudag.
Davies ákvað að skella sér út á götur Vancouver til að athuga stemningu meðal almennings og sýndi fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum frá því þegar samlandar hans könnuðust ekki við hann þrátt fyrir að klæðast landsliðstreyju Kanada merkta Davies.

Canada star Alphonso Davies goes out to the street, sees people with his shirt but they don't recognize him
by
u/lonebunny227 in
soccer
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!