Fotbolti.net
15.06.26 - 09:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Maður laugardagsins þreytti frumraun sína undir Heimi

Maður laugardagsins þreytti frumraun sína undir Heimi
Canon

Mynd: EPA

Mahmoud Abunada átti góðan leik í marki Katar sem kom mjög mörgum á óvart á laugardag og náði í stig gegn Sviss. Jöfnunarmark Katara kom í uppbótartíma.

Abunada er 26 ára og varði fimm af sex skotum sem komu á markið.
Maður dagsins á HM - Fyrrum lærisveinn Heimis í essinu sínu
TENGT EFNI

Maður dagsins á HM - Fyrrum lærisveinn Heimis í essinu sínu

Hann er í dag markvörður Al Rayyan í heimalandinu og var besti markvörður tímabilsins í Katar.

Hann var áður hjá Al Arabi. Heimir Hallgrímsson, nú landsliðsþjálfari Írlands, var þjálfari Al Arabi þegar hann þreytti frumraun sína í meistaraflokki í febrúar árið 2019.

Það var annar leikmaður í liði Katara sem þreytti frumraun sína í meistaraflokki undir stjórn Heimis. Það er miðjumaðurinn Jassim Gaber.

Framherjinn Yusuf Abdurisag spilaði líka undir stjórn Heimis og varamaðurinn Ahmed Fathi gerði það einnig.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.