Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 15. júlí 2021 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chelsea samþykkir tilboð Palace í Guehi
Mynd: EPA
Marc Guehi er á leið til Crystal Palace frá Chelsea ef marka má heimildir Athletic.

Guehi er 21 árs og hefur verið á láni hjá Swansea undanfarið eitt og hálft tímabil.

Chelsea er sagt hafa samþykkt tilboð Crystal Palace í leikmanninn sem fæddur er á Fílabeinsströndinni en hefur leikið með yngri landsliðum Englands.

Guehi er miðvörður sem uppalinn er hjá Chelsea. Hann hefur spilað tvo leiki fyrir aðallið Chelsea, báða í deildabikarnum á þarsíðasta tímabili.

Chelsea mun fá hluta af næstu sölu Guehi og getur jafnað tilboð annarra félaga ef félagið vill fá hann aftur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner