Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 15. júlí 2021 15:30
Elvar Geir Magnússon
Pepe Reina í mörgæsarbúningi í skemmtiþætti
Mynd: Skjáskot
Pep Reina, fyrrum markvörður Liverpool, kom frá í mörgæsarbúningi í spænskum skemmtiþætti í gær.

Keppendur þáttarins giskuðu á það hver það væri sem væri klæddur í búninginn góða.

Einhverjir giskuðu á að Andrés Iniesta væri mörgæsin en það var grínistinn Jose Mota sem hitti í mark og goskaði á Reina.

Reina tók lagið í mörgæsarbúningnum og velti því upp á samfélagsmiðlum hvort það væri ekki rökrétt skref að taka næst þátt í Eurovision söngvakeppninni.

Reina er 38 ára og spilar í dag fyrir Lazio en eftir að hann yfirgaf Liverpool hefur hann einnig leikið fyrir Bayern München, AC Milan, Napoli og Aston Villa.


Athugasemdir
banner
banner
banner