Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 15. júlí 2021 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wolves búið að næla í arftaka Patricio (Staðfest)
Jose Sa.
Jose Sa.
Mynd: EPA
Úlfarnir í ensku úrvalsdeildinni hafa krækt í arftaka portúgalska markvarðarins Rui Patricio sem er farinn til Roma.

Nýi markvörðurinn er einnig portúgalskur en hann heitir Jose Sa. Hann kemur frá grísku meisturunum í Olympiakos og skrifar undir fimm ára samning við Úlfana.

Wolves borgar 6,85 milljónir punda fyrir Sa, en félagið fær tæpar 11 milljónir punda frá Roma fyrir Patricio.

Sa hjálpaði Olympiakos að vinna tvo meistaratitla í Grikklandi. Hann spilaði 124 leiki fyrir félagið og hélt hreinu í helmingi þeirra.

Bruno Lage, nýr stjóri Wolves, þekkir Sa ágætlega. Hann vann með honum í unglingaliðum Benfica fyrir nokkrum árum síðan.

Úlfarnir höfnuðu í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner