Liverpool undirbýr tilboð í Branthwaite - Nketiah nálgast Forest - Sterling boðinn til Villa
   mán 15. júlí 2024 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ronald Araújo mögulega frá keppni þar til í desember
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Úrúgvæski varnarmaðurinn Ronald Araújo meiddist þegar Úrúgvæ sló Brasilíu úr leik í Copa América á dögunum.

Araújo meiddist skömmu eftir viðskipti sín við Endrick og Raphinha, leikmenn Brasilíu, og er staddur í Barcelona þessa stundina þar sem hann gæti þurft að gangast undir aðgerð.

   07.07.2024 10:00
Karma beit Araujo í rassinn


Þetta litu út eins og einföld vöðvameiðsli aftan í læri við fyrstu skoðanir en svo virðist ekki vera í dag. Það lítur út fyrir að hvíld, endurhæfing og bati séu ekki nóg til að lækna Araújo í þetta sinn.

Samkvæmt heimildum Fabrizio Romano mun Araújo gangast undir hnífinn og vera frá keppni allt þar til í desember.

Þetta eru slæmar fréttir fyrir Barcelona enda er Araújo mikilvægur hlekkur í varnarleik liðsins. Hann á 150 leiki að baki fyrir félagið og er með tvö ár eftir af samningi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner